benefit of the doubt?
05.06.2008 23:14:29 / flughafrar

PARTÝ Í HAFNARFIRÐI

Cilia fyllist fortíðarþrá með sumrinu og ætlar að halda PISAPARTÝ með stuttum fyrirvara næstu helgi. Laugardagurinn 5. júní í Hafnarfirðinum, áhugasamir hafi samband gegnum Facebook eða sjái númerið í símaskránni.

kv. Cilia


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 20:42:32 / flughafrar

Hvar eruð þið???

Hellú!!!

 

Mig langaði bara að forvitnast hvað allir eru að gera í sumar.... skrýtið að vera ekki að lesa um flughafra og lyfta númerum upp í loftið ;) 

Ég er að vinna í algjörri sóló-vinnu, aðstoðarmaður í rannsókn tengdri náminu mínu sem er auðvitað frábært tækifæri en frekar einmanalegt til lengdar að hafa ekki PISA fólkið að spjalla við! 

Er ekki að koma tími á eitt stykki party???


Sjáumst vonandi sem fyrst 8)

 

Dagbjört 


» 24 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 13:26:33 / flughafrar

Hrafnaspark

Tónleikar með Hrafnasparki (... jóa...) á Rosenberg annað kvöld, herlegheitin hefjast kl. 23.00 og standa fram eftir nóttu. Kostar 1000kall inn.

Allir að mæta! 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 11:23:22 / flughafrar

Næsta Programme for International Students Assessment-partý

Öðlingur hann Jói hefur boðist til að halda fyrsta pisapartý 2007
það verður annað hvort 23. eða 24. feb. fer eftir niðurstöðum kosningarninar ;)
Vona að sem flestir komist og við getum djammað eins og það sé sumarið 2006.
Ps Helga MOVE YOUR SELF:D
kv. Bjössi

» 20 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 19:56:09 / flughafrar

Pisaparty

Hæhæ ég veit ekki með ykkur en mér finnst alltof langt síðan síðast partý var :( 
svo nú er spurningin hvort einhver býður sig fram til að hýsa það:)
Endilega koma með uppástungur með dag líka!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 10:25:54 / flughafrar

Partý??

Upp hefur komið sú hugmynd að halda partý bara 10. feb.?? Hvað segir fólkið??


» 16 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 12:55:59 / flughafrar

Takkatakk

Partýið lukkaðist bara ágætlega. Mæting var góð, hefði þó mátt vera betri. Bjössi er hér með bara útnefndur Beilerinn! Takkatakk Inga (og Jesús) fyrir rósina :D

Var eiginlega bara að ná mér í dag, það endaði þannig að ég og Skúli fórum ein niðrí bæ og fórum í lítinn leik sem nefnist Ógeðisskotið. Sem gengur út á það að splæsa á hinn aðilann því ógeðslegasta skoti sem þú getur hugsað þér. Við hittum síðan Jóa spóa og ég tel að það sé óhætt að segja að ég hafi ekki orðið svona full í mööööööörg ár. Fór heim milli 5 og 6 og vaknaði daginn eftir við þennan ógurlega hausverk, man að ég hugsaði "Jæja, það hlaut að koma að því... núna SPRINGUR hausinn á mér". Hitti Skúla aðeins í gær og hann hafði sömu sögu að segja.

Hvað varð um ykkur hin??

-kolla


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 11:07:29 / flughafrar

PAAAAAAAARRTÝÝÝÝ!!!

Alveg tími til kominn!!

Partý hjá Skúla föstudaginn 13. okt. (hef ekki hugmynd um hvar... spurning um að senda skúla sms og ath.), vinsamlegast látið vita hvort þið mætið eður ei.

Hápunktur partýsins er auðvitað sá að ég á afmæli 9. og mun ég taka á móti hamingjuóskum, kossum og þess háttar milli kl. 11 og 12.

Þar að auki mun Íris æfa sig á því að koma með sjónarhorn mannfræðinema á hin ýmsu málefni og mun hún ganga á milli fólks og benda þeim á mannfræðileg sjónarhorn líðandi stundar.

Ef við verðum heppin munu Þórir Hall og Bjössi stíga trylltan gleðidans.

Mætið eða verið þríhyrnd (orðið þreytt að vera ferhyrnd).

-kolla


» 18 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 13:51:19 / flughafrar

Smá pæling....

.... ætli þetta hafi verið slip of the tongue hjá Skúla þegar hann lofaði öllu fögru um næsta PISA party??? Hmmmmm.....

Hvað er að frétta???
Allir að tjá helstu fréttir af sér!

Dagbjört... sem er bara að drukkna í lærdómi og á sér ekkert líf! ;)

» 15 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 10:16:55 / flughafrar

myndir myndir....

Hellú öll og takk fyrir síðast :D sérstaklega gestgjafarnir auðvitað fyrir að leyfa okkur að nota súperkolagrillið og halda vöku fyrir nágrönnum þeirra....;)

Spes þakkir fær svo Skúli fyrir að stjórna hraunhorninu með stakri prýði!!!

Hundrað stykki myndir eru HÉR!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 21:42:17 / flughafrar

Næsta partý

Ég ákvað að setja þetta bara í nýja færslu:

Partý á laugardaginn 2. sept. hjá Jóa að Brjóstabrekku 2... mæting kl. 8. Verður heitt grill á staðnum ef veður leyfir, svo fólki er velkomið að skella e-ju á það.

Skúli mun stjórna sérstöku hraun-horni, þar sem fólk getur losað um pirring sumarsins og hraunað á aðra að vild.

Einnig væri skemmtilegt ef einhver gæti reddað rúmenska laginu Tornero með goðinu okkar honum Mihai Traistariu, hvers rödd getur náð fimm áttundum og einum þriðja skv. www.eurovision.tv.

Kv. Kolla


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 17:51:50 / flughafrar

upphafið!

Einhverjum datt í hug að gera svona síðu fyrir okkur og ég ákvað að prófa, vona að Íris sé ekki að búa til aðra síðu á nákvæmlega sama tíma ;) Þetta er auðvitað nauðsynlegt fyrir öll þessi party sem við ætlum að plana í vetur, þá sleppum við við að senda milljón sms sem hvert kostar 10 krónur og mun það þá vera sparnaður upp á 10 milljónir.

Hvernig líst ykkur á???

Góða helgi!
Dagbjört

» 14 hafa sagt sína skoðun